ARMA

16.06.2026

Bláa Lónið og Arctic Adventures sameinast

This announcement is published in Icelandic only.

Bláa Lónið hf. og Arctic Adventures hf. undirrituðu í júní 2026 samkomulag um sameiningu félaganna þar sem Bláa Lónið kaupir Arctic Adventures. Sameinað félag verður ein stærsta samstæða í íslenskri ferðaþjónustu.

Bláa Lónið er móðurfélag fyrirtækja í upplifunarferðaþjónustu, heilsu og vellíðan. Arctic Adventures sérhæfir sig í ævintýra- og afþreyingarferðaþjónustu og rekur meðal annars Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshelli. Samanlagðar tekjur félaganna námu um 34,3 milljörðum króna árið 2025 og samanlagður fjöldi stöðugilda var um 1.120, þar af um 780 hjá Bláa Lóninu og 340 hjá Arctic Adventures.

Viðskiptin voru háð áreiðanleikakönnun, samþykki hluthafafunda beggja félaga og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið heimilaði kaupin án skilyrða í nóvember 2026. Samhliða undirbýr Bláa Lónið skráningu á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, segir kaupin mikilvægt skref í þá átt að staðsetja Ísland meðal fremstu upplifunar- og vellíðunaráfangastaða heims. Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, segir sameininguna marka tímamót fyrir félagið og skapa tækifæri til vaxtar og þróunar.

ARMA Advisory var ráðgjafi seljenda í viðskiptunum og Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans ráðgjafi kaupanda.